|
|
02.02.2010 11:36:29 / studio
 Sælar elskur! Ég býð hér með til saumaklúbbs fimmtudaginn 11. febrúar kl.18:30 í Hærribæ við Langavatn. Held að best væri að hittast við Olísstöðina við Suðurlandsveginn (rétt hjá Söndrunni okkar) og keyra saman upp að bænum. Hlakka til að sjá ykkur! Ástarkveðjur, ykkar Ásta Sigga í 6960230
»
28.01.2010 23:20:47 / studio
Hæ, var búin ad bjóda nokkrum ykkar í afmæli hjá Þórdi þann 13. feb. nk ( átti eftir ad láta hinar vita), en þad verdur víst ad bída betri tíma! Skjótt skipast vedur í lofti hjá Þórdi, hann átti ad vera heima til 17. mars, en verdur sendur til Noregs í næstu viku og verdur í mánud  Þannig ad þad er spurnig hvort hann kíli á þetta þann 6. mars í stadinn, læt ykkur vita sídar, Kv, SARA
»
25.01.2010 22:49:25 / studio
Sælar allarsaman. (Set þetta líka inn hér þótt ég hafi skrifað skilaboð á Facebook).... Mig langar að bjóða í saumaklúbb upp í bústað mömmu og pabba: Hærribæ semflestar hafa þekkt undir nafninu: "Harrýbæ" í gegnum árin. Hálffyndiðað kalla þetta sumarhús í dag, þar sem hann liggur innan borgarmarkanna.
Hverjum hentar eftirfarandi dagsetningar? · Föstudags-kvöld 5. febrúar · Laugardags-hádegi 6. febrúar · Sunnudags-hádegi 7. febrúar · Fimmtudags-kvöld 11. febrúar Endilega kommentið, hef ekki hugmynd hvernig staðan er hjá ykkur? Hlakka til að sjá ykkur allar, xxx knus frá kaldri Köben, Ásta Sigga />
»
19.01.2010 11:22:59 / studio
Hæ sætu skonsur Hvað segiði um kaffihúsaferð í vikunni?? Nú er kellingin bara hætt að vinna og farin að bíða óþreyjufull eftir því að litli demanturinn mæti í heiminn!! Eyþór er að vinna eins og geðsjúklingur þar til krílið fæðist og ég hef því allan tíma heimsins til að leika við ykkur elskur ef þið eruð kallalausar einhvern daginn/kveldið :0) Ég var að spá í fimmtudagskveldið hvort það gæti virkað? Væri gaman fyrir þær sem geta að fara og fá sér snæðing og svo jafnvel gott kaffi og köku í desert  Knús, Silla
»
06.01.2010 02:14:42 / studio
Myndir komnar á mína síðu og okkar síðu! Gat ekki lagað rauð augu einhverja hluta vegna, tölvan mín er óþolandi, pirrandi............nóg um það! Fæ brósa til að hjálpa mér með það seinna. Þær eru sem sagt komnar inn með rauðum augum.....þið getið síðan bara tekið út það sem ykkur mislíkar. Kv Íris
»
04.01.2010 14:26:25 / studio
Hver býður sig fram í að halda saumarklúbb í janúar, það er nefnilega enginn skráður þennan mánuðinn. BARA einhver..
»
31.12.2009 16:18:28 / studio
Sælar allar saman, gledilegt nýtt ár og takk fyrir þad gamla. Takk fyrir öll kortin, sendi því midur engin út þetta árid en stefni á ad bæta úr því á komandi ári Vona ad þid eigid allar frábært kvöld í vændum hvar sem þid verdid staddar, hlakka til ad hitta ykkur hressar og kátar í nýju ári Þid sem erud staddar hér á landi, hvernig var þad á ad vera "nýárshittingur" á morgun og skella sér á Sálina á Spot í Kópavogi?Kvedja Sara
»
23.12.2009 13:08:41 / studio
Jólin, jólin þau eru fín.
Gleðileg jól og friður á jörð.
Farsælt nýtt ár. [Baggalútur]
»
14.12.2009 17:07:46 / studio
 Matseðill kvöldsins:
- Jólafordrykkur* - Sveppasúpa - Smábrauð með hráskinku, pestó og mozzarella - Waldorfssalat - Valhnetur ristaðar í sírópi - Grísarif með reyktri bbq olíu - Camembert í mango chutney - Eitthvað jólagúmmelaðerí - Rauðvín og jólaöl
Skemmtun kvöldsins:
- Pakkaleikur stúdíópía - allar koma með gjöf kr. 500-2500 - Sungin jólalög - Hópratleikur í Hljómskálagarði - leitin að jólaföndrinu!* - Jólaföndur (ef studio skvísum tekst að finna föndrið!)
------------------------------ *Ef ég nenni... sbr. lagið góða
ALLAR AÐ MÆTA MEÐ JÓLASKAPIÐ OG TREFIL, HÚFU OG VETTLINGA EF KALT ER Í VEÐRI OG PAKKA Í PAKKALEIKINN AUÐVITAÐ!
Tilkynnið forföll hér í kommentunum, en ég býst við Írisi, Teresu, Svölu, Sillu, Maríu, Söndru, Söru, Söndru H. og mér!
Kv. Guðrún Inga Jólabarn
»
09.12.2009 18:01:27 / studio
Hin 90 ára gamla Regina Brett frá Ohio skrifaði þessi 45 atriði um það sem lífið hafði kennt henni:
1. Lífið er ekki sanngjarnt, en það er samt ljúft 2. Þegar þú ert í vafa, taktu þá bara lítið skref 3. Lífið er of stutt til að eyða tíma í að hata einhvern 4. Vinnan þín mun ekki sjá um þig þegar þú verður veik(ur). Vinir þínir og fjölskylda munu gera það. Vertu því í sambandi við þau. 5. Greiddu kreditkortareikninginn þinn í hverjum mánuði 6. Þú þarft ekki að vinna öll deilumál samþykktu að vera ósammála 7. Gráttu með einhverjum. Það er betra en að gráta einn 8. Það er allt í lagi að reiðast út í guð.- - - Hann þolir það 9. Safnaðu fyrir elliárunum og byrjaðu með fyrsta launaseðlinum 10. Þegar kemur að súkkulaði, þá er mótstaða árangurslaus 11. Semdu frið um fortíðina, þannig að hún eyðileggi ekki samtíðina 12. Það er í lagi að láta börnin þín sjá þig gráta 13. Berðu ekki þitt líf saman við annarra. Þú hefur ekki hugmynd um hvernig þeirra líf er 14. Ef samband þarf að vera leynilegt, þá áttu ekki að vera í því 15. Allt getur breyst á augabragði. En hafðu ekki áhyggjur 16. Dragðu andann djúpt að þér það róar hugann 17. Losaðu þig við allt sem ekki er nýtilegt, fallegt eða skemmtilegt 18. Það sem ekki drepur þig gerir þig bara sterkari 19. Það er aldrei of seint að hafa skemmtilega barnæsku. En sú seinni er alveg undir þér komin og engum öðrum 20. Þegar kemur að því að sækjast eftir því sem þú elskar við lífið, taktu þá aldrei Nei sem svar 21. Brenndu kertin, notaðu fínu rúmfötin, farðu í fínu nærfötin. - - - Sparaðu þetta ekki fyrir sérstök tilefni. Í dag er sérstakt tilefni 22. Undirbúðu þig ávallt vel láttu svo strauminn taka þig 23. Vertu óvenjuleg(ur) í dag - - - Bíddu ekki eftir gamals aldri til að klæða þig í fjólubláan lit ! 24. Mundu að mest áríðandi kynfærið er heilinn 25. Enginn ræður yfir hamingju þinni nema þú 26. Rammaðu inn allar svokallaðar þjáningar með orðunum . . . . Mun þetta skipta einhverju máli eftir 5 ár ? 27. Hafðu lífið alltaf að leiðarljósi 28. Fyrirgefðu öðrum allt 29. Það sem aðrir hugsa um þig kemur þér alls ekki við 30. Tíminn læknar svo til allt. . . . Gefðu tímanum tíma 31. Hversu gott eða slæmt sem ástandið er,. . . þá mun það breytast 32. Taktu þig ekki of hátíðlega, . . . enginn annar gerir það 33. Trúðu á kraftaverk 34. Guð elskar þig vegna þess hver hann er, ekki vegna þess sem þú gerðir eða gerðir ekki 35. Endurskoðaðu ekki lífið, . . Vertu til staðar og taktu þátt í því 36. Að verða gamall er betra en hinn kosturinn - - - að deyja ungur 37. Börnin þín fá bara eina barnæsku 38. Allt sem skiptir máli í lokin er að þú hafir elskað 39. Farðu út á hverjum degi , - - kraftaverk bíða alls staðar 40. Ef við myndum öll kasta áhyggjum okkar í stafla og sæjum stafla hinna, . . þá myndum við hrifsa okkar til baka 41. Öfund er tímasóun.- - - Þú hefur nú þegar allt sem þú þarfnast 42. Það besta er ef til vill einnig ókomið 43. Það skiptir ekki máli hvernig þér líður, - - - farðu á fætur, klæddu þig og sýndu þig. 44. Láttu undan 45. Lífið er ekki skreytt með slaufum, - - en samt er það gjöf
»
23.11.2009 16:08:10 / studio
Íris hélt dúndur kjötsúpu- og ísboð í gær og lagaði okkur þynnkugellurnar (ófáar þunnar ehemm).
Við skoðuðum endalaust af fögrum skartgripum eftir Teresu og langaði í allt hehe.

Næst á dagskrá er desember mánuður með öllu sínu jólastússi. Þann 17. desember ætlum við að taka okkur hlé í jólaundirbúningi og mæta til Guðrúnar Ingu kl. 19. Dagskráin er enn ósamsett en lofað er dýrðum og huggulegheitum. Mætum í fínasta pússi en þó þægilega klæddar, og með húfur og vettlinga Spurning hvort þetta verði ekki bara óvissukvöld? híhí.
Takið frá kvöldið
»
12.11.2009 17:37:57 / studio
Jæja skonsur! það verður saumó hjá mér sunnudaginn 22 nóv á Leifsgötu 1o. Mæting kl 19:30 og á boðstólnum verður kjötsúpa. Endilega látið mig vita með mætingu
»
05.11.2009 16:22:55 / studio
Íris okkar biður okkur um að taka frá helgina 21.-22., sennilega sunnudaginn 22. nóvember, fyrir saumaklúbb hjá sér
»
29.10.2009 00:30:25 / studio
Studioclub Árshátíð 2009 Hver er hún? Já þú ert eflaust að hugsa það sama og ég! Eftir dekur-dúllu-árshátíðar-mega-ferð okkar sem hefst á laugardaginn n.k. 31. okt stundvíslega kl.11:45 við Olísstöðina við Norðlingaholt munum við allar verða beauty-bombur eins og vinkona okkar hér að ofan! Tjékkið pósthólfin ykkar fyrir frekari upplýsingar varðandi daginn! Ég hlakka tiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiil! ÁS
»
26.10.2009 11:15:41 / studio
Jæja elskur... nú er aldeilis farið að styttast í fjörið!!!
Eruði ekki orðnar spenntar???
Við skemmtinefndin erum að fara að hittast núna í vikunni til að ganga endanlega frá skemmtiprógramminu nk. laugardag... dadaraaaa... ótrúlega spennó!
Langaði nú bara að fiska líka hvort það sé ekki örugglega allt í rétt átt hjá lazarusunum okkar??? (Minns er alveg dauðskelkaður við "svín" þessa dagana og þyrfti helst að vera í eins konar sóttkví fram á nk. mánudag þar til ég fæ bóluefnissprautuna góðu!!!)
Eru ekki annars örugglega allar að fara að mæta sem voru búnar að boða komu sína? Hver er endanleg tala?
Þarf ekki líka að panta borð á Fjöruborðinu? Hver sér um það?
»
Síður: 1 2 3 ... 29
|
Studioclub
Fréttamiðill fyrir okkur um
okkur, og tól til að skipuleggja hittinga. Loks bullum við líka stundum.
Lifið heilar, sælar og glaðar.
Sætar, súrar og graðar.
Geggjaðar, kúlar og töff.
Kræsilegar, reittar og röff.
PÓSTLISTI: mariab@intrum.is; sandra_thorodds@ hotmail.com;
irisi@internet.is; sarastefansd@ gmail.com; gudrunit@gmail.com;
sigridur.arnadottir@ sjova.is; astafjeldsted@ gmail.com; ues@hi.is;
teresatryggva@ hotmail.com; sandrahauks@ gmail.com; ziggadan@ internet.is; svala_h@ hotmail.com
ágúst: Sandra H sept: Sandra Þ okt: árshátíð Studioclub nóv: Íris des: Guðrún I jan: xxx feb: Sigga mars: María apríl: Svala maí: Silla júní: xxx júlí: Sara
Könnun
Vissir þú af sumarbústaðarferð SC stelpna helgina 31/1 okt.?
Játs
9 atkvæði
Nei, en nú veit ég það!
0 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 9
Heimsóknir
Í dag: 23 Alls: 62509
|