|
|
29.06.2006 09:16:06 / studio
Heeeeelú nigapunks
1.helgin í júlí - Hvað er lokaplanið?

Sillfríður - ég fer að öllum líkindum norður, en þið
Eyþór? og ef þið hinar viljið fara þangað og komast í sumar og
sól, þá er alltaf hægt að fara í Kjarnaskóg eða eitthvað þar sem er
útilegustæði þar í kring.
-Önnns-
»
27.06.2006 13:47:15 / studio
Hæ elsku stúdíópíur!
Langt síðan ég skrifaði hérna inn, svo ég held ég verði að hafa
þetta sérpistil.
Ógó gaman á laugardagskvöldið, þótt ég hafi ekki séð neina af ykkur
stelpunum. Treysti því að það hafi verið gaman hjá ykkur Sandra og
María  Við vorum með partý langt fram eftir nóttu á Ránargötunni
hjá Binnu frænku, fórum svo á Ölstofuna og þaðan fóru sumir í
morgunmat á Hótel Sögu. Ég fór reyndar heim um sex leytið, enda
eftirmiðdagsflug daginn eftir. Hef sjaldan verið jafn þunn í flugi
Af mér er svo sem ekki mikið að frétta síðan við hittumst síðast.
Búin að vera í endalausum Ameríkuflugum, sem er sko ekkert
leiðinlegt. Fór til San Francisco um daginn og skemmti mér þvílíkt
vel. Svo er auðvitað trúlofunin sem ég held þið vitið allar af...
híhí. Fjölskyldan öll voða glöð yfir því.
Ég segi það sama og Silla: Hvenær verður sumarbústaðurinn? Og eigum
við ekki að hittast bráðlega í góðu tómi?
Knús og ást til ykkar allra,
Gullan.
»
26.06.2006 14:06:09 / studio
howdy...
langaði nú bara að byrja á að þakka kærlega fyrir frábært
laugardagskvöld elsku Sandra og María, skemmti mér mjög vel. Hefði
nú mátt vera betri mæting hjá studiopíunum en þó það hafi
verið "fámennt" (þó það hafi nú alveg skriðið í 60%
mætingu þ.e. á meðal okkar) var klárlega GÓÐMENNT -
...Það var nú kannski alveg við þessu að búast á svona degi - þegar
tæplega 1000 manns eru að útskrifast samdægurs - og hvað þá
þegar brúðkaup var líka á dagskrá þennan daginn!
Við sem mættum af studioclub flokknum náðum alla vega að mynda
rífandi stemmingu ásamt hinum gestunum ;0) Það verður nú að
viðurkennast að gítarmaðurinn átti upptökin af þessu gríðarmikla
fjöri og reif alla með sér í gírinn og eftir það var ekki aftur
snúið 
Jæja - svo langaði mig bara rétt að heyra hvort einhverjar væru
með á hreinu hvernig þessum sumarbústaðamálum verður háttað? Erum
við hættar við eða erum við komnar yfir á það að sleppa mökum og
fara bara the gellís e-a helgina?
P.s. Mæli með því að við reynum að fjölmenna til Eyja!!!
Ég er alla vega á leið þangað með Eyþóri o.fl. og vonast nú til að
sem flestar okkar sjái sér fært að koma með.
Kv.
Silla
»
25.06.2006 18:50:17 / studio
Hæ skvísur,
Nokkrar línur héðan frá Akureyri þar sem ég hef verið í sólbaði
og sundi báða dagana, eitthvað annað helv. rigningin í rvk.
Leiðinlegt að komast ekki í veisluna ykkar elsku Sandra mín og Mæja
mín, vonandi heppnaðist hún vel, var með ykkur í anda. Er
búin að vera hér í afmælisveislu í dag og er alveg búin að troða
mig út af kökum og drasli. Til hamingju með að vera búin í prófunum
Lova mín það er svo sannarlega góð tilfinning og gangi þér vel í
Tælandi, það verður eflaust mikið ævintýri! Fyrir þær sem vilja
joina mér í átaki núna þessa vikuna, þá verður tekið á því og farið
í sund líka, svo erum við Anna Hlin búnar að fara að ganga í 2 tíma
að kvöldi til, það var æðislega gott, svo endilega joinið í það
líka. =)
Hugs and bugs,
-unns-
»
23.06.2006 12:08:19 / studio
Elskur!!!
Væri sko til i ad koma og knusa ykkur allar a
laugardaginn... en eg er vist ad fara i ofuga att... tek flug
til Bangkok a morgun kl. halfsex. Eg var rett i tessu ad klara
profin... buid ad ganga mjog vel... en eg er lika buin ad klara
orkuskammtinn sem atti ad duga ut arid he he... ætli eg fai ekki
hladid batteriin i sumar ... puha... er vist buin ad koma mer i
eitthvad risaverkefni tarna nidri i Thailandi i samvinnu med donsku
fyrirtæki lika... a ad fa 15 stig fyrir tetta her a DTU... ikke
dårligt Tannig tad verdur ekki bara solbad og stud....
Allavega... eg er ad setja sidu upp tar sem eg mun rofla
eitthvad um veru mina tarna nidur fra... læt ykkur vita hvad slodin
er...
Vona bara ad tid hafid tad allar sem best og faid notid
helgarinnar i sol og sumaryl. Eg er a leid nidur a strond ad fagna
med bekknum minum.... grill og øl, volley og hygge 
Riiiiiiiiiiiiiiiisa knus, ykkar Love
»
22.06.2006 22:04:11 / studio
Sælar
skvísur.
Jæja þá er
sólin loksins farin að skína, húrra fyrir því. Búið að vera
brjálað að gera þessa dagana. Er á fullu að undirbúa veisluna
á laugardaginn, búin að setja dressið í hreinslun og skellti
mér svo í strípur áðan. Það má því segja að ég sé búin að
standa á haus þessa vikuna. Er líka byrjuð að hlaupa úti, þar
sem þolprófið fyrir Lögregluskólann er í byrjun ágúst og því
ekki seinna vænna að ná upp þoli. Ef þið sjáið því
löðusveitta, sprettandi snót með ipodinn milli brjóstanna, þá
er það ég. Rauða axcent úrið hefur nú fengið nýjan tilgang,
það er að vera tímavörður í 2 km spretthlaupi Mary þar sem
takmarkið er að ná þeim á 10-11 mínútum. Annars hef ég svo
sem engar stórvægilegar áhyggjur af þessu þrekprófi, fyrir
utan bekkpressu og upphífingar, sem verður væntanlega
eitthvað skrautlegt. En jæja nóg af mér, stelpur hvað er
málið!!!!! Ég held að ég sé ein af fáum af okkur sem er ekki
að vinna fyrir framan tölvu allan daginn, en samt sem áður
virðist vera að ég sé sú eina sem skrifa eitthvað hérna
inn.....Ætla nú ekki að skamma ykkur, en bætið ráð
ykkar
J
Langar
svo bara í lokin að minna ykkur á útskrifapartýið hjá okkur Söndru,
sem haldið verður á laugardaginn í Funafold 8 og hefst gleðin
klukkan 21 (eða á milli hálf níu og níu).
Hlakka
til að sjá ykkur allar, kveðja
Maja
»
14.06.2006 11:10:03 / studio
»
11.06.2006 13:21:54 / studio
Takk fyrir mig Sillie
mín í gær, þetta var ótrúlega gaman og vel heppnað =) Líka
frábært að það komust eiginlega allar stelpurnar. 
Heyriði var að spá í skella inn nokkrum myndum í kvöld frá gærkvöldinu, þegar
ég er búin að sækja myndavélina upp í Þverársel, svo endilega
fylgist með því .
Jæja lögst í 24, á bara 3
þætti eftir og er að pissa í mig úr spenningi...þetta er hættulegt
að festast í svona þáttum sjæse mann...  By the way, ég á fyrstu 2
seríurnar en ekki allar 5 eins og ég hélt, en það er ekkert mál að
fá þær lánaðar.
-UE
»
10.06.2006 16:57:37 / studio
Elsku Silla mín, innilega til hamingju með daginn
(útskriftadaginn). Hlakka til að sjá ykkur allar í kvöld, kv
Maja.
»
07.06.2006 14:21:39 / studio
Sælar,
ætlaði nú bara rétt að minna á teitið í Þverárselinu
lau. 10.júní í tilefni af þeim skemmtilega áfanga að mar er
loksins komin með BA í lögfræði eftir átakanlegar annir .
Þótt þetta sé nú ekkert stórmerkilegt í sjálfu sér, ( þar sem
aðalatriðið er nú að komast í gegnum mastersárin 2, sem bíða
mín næstu 2 árin ), þá þætti mér samt gasalega vænt um að sjá ykkur
sem flestar og að sjálfsögðu eru makar meira en velkomnir! Hafði
hugsað mér mætingu bara milli 20.30 - 21.
Hlakka til að sjá ykkur,
Ykkar,
Silla pilla
»
05.06.2006 08:29:09 / studio
ELSKU GUDRUN
MIN!
INNILEGA TIL
HAMINGJU MED DAGINN....!!!
TINAR STU STU
STUDIOGELLS
XXX
»
02.06.2006 14:39:23 / studio
Jæja skvísuflísur,
Byrja á að segja: Maja, til hamingju með ammlið 
Ég er BÚIN á því. Og það sem meira er: Búin í prófum!! Jeij.
En það var nú ekkert stórátakalaust. Flaug til NYC í fyrradag og
kom í dag aftur. Eyddi dvölinni úti í að lesa á hótelherberginu,
sem gekk stórvel og gasa huggulegt. Fór reyndar í einn danstíma um
morguninn sem var ofsalega gott, ásamt fleiri New York babe-um (sem
hafa sumar netta sýniþörf held ég, nánast allsberar að fíla sig
aðeins of vel).
Mætum síðan aftur á flugvöllinn um sjöleytið að staðartíma, og
flugvélin ekki mætt. OK, hugsa ég, allt í lagi. Pínu stressuð út af
prófinu í dag kl tíu, en ég hafði rúma þrjá tíma á milli svo að
ekkert stress. En nei nei, auðvitað þurfti að koma þrumuveður... í
þrjá klukkutíma. Spennan óx og svitinn jókst og á endanum var
kominn feitur kökkur í hálsinn. Öll vinnan og stressið að verða að
engu - ég kæmist ekkert í prófið. En ok, loksins léttir veðrinu og
allir farþegar koma um borð. En já.... við nr. 50 í röðinni að taka
á loft, og á bilinu 1-2,5 klst áætlaðar í bið eftir því. Þá fór mín
nú bara að gráta skal ég segja ykkur. Leið eins og ég þyrfti að fá
áfallahjálp. En svo við gerum langa sögu stutta þá lentum við, ég
fyrst út úr vélinni, upp í leigubíl, og beint í skólann í
flugfreyjubúningnum og náði að taka prófið, síðust, áður en
prófdómararnir fóru úr skólanum - og fékk að vita að ég hefði
staðist það. Þungu fargi af mér létt.
jeijejeiejeij. Ætla að leggja mig, ekkert búin að sofa. Sé ykkur
vonandi í kvöld - en ég þarf að vera á æfingu eitthvað frameftir og
svo eru tvö önnur ammli á planinu líka  . Þarf að reyna að
samtengja þetta eitthvað. En þetta hefur líka smá forgang Maja mín,
hvað annað  Maja ammlisbarn.
Knús og kossar,
Guðrún Inga.
»
|
Studioclub
Fréttamiðill fyrir okkur um
okkur, og tól til að skipuleggja hittinga. Loks bullum við líka stundum.
Lifið heilar, sælar og glaðar.
Sætar, súrar og graðar.
Geggjaðar, kúlar og töff.
Kræsilegar, reittar og röff.
PÓSTLISTI: mariab@intrum.is; sandra_thorodds@ hotmail.com;
irisi@internet.is; sarastefansd@ gmail.com; gudrunit@gmail.com;
sigridur.arnadottir@ sjova.is; astafjeldsted@ gmail.com; ues@hi.is;
teresatryggva@ hotmail.com; sandrahauks@ gmail.com; ziggadan@ internet.is; svala_h@ hotmail.com
ágúst: Sandra H sept: Sandra Þ okt: árshátíð Studioclub nóv: Íris des: Guðrún I jan: xxx feb: Sigga mars: María apríl: Svala maí: Silla júní: xxx júlí: Sara
Könnun
Vissir þú af sumarbústaðarferð SC stelpna helgina 31/1 okt.?
Játs
9 atkvæði
Nei, en nú veit ég það!
0 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 9
Heimsóknir
Í dag: 14 Alls: 63427
|