29.10.2009 00:30:25 / studio
Studioclub Árshátíð 2009
Hver er hún? Já þú ert eflaust að hugsa það sama og ég! Eftir dekur-dúllu-árshátíðar-mega-ferð okkar sem hefst á laugardaginn n.k. 31. okt stundvíslega kl.11:45 við Olísstöðina við Norðlingaholt munum við allar verða beauty-bombur eins og vinkona okkar hér að ofan! Tjékkið pósthólfin ykkar fyrir frekari upplýsingar varðandi daginn!
Ég hlakka tiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiil!
ÁS
»
26.10.2009 11:15:41 / studio
Jæja elskur... nú er aldeilis farið að styttast í fjörið!!!
Eruði ekki orðnar spenntar???
Við skemmtinefndin erum að fara að hittast núna í vikunni til að ganga endanlega frá skemmtiprógramminu nk. laugardag...
dadaraaaa...
ótrúlega spennó!
Langaði nú bara að fiska líka hvort það sé ekki örugglega allt í rétt átt hjá lazarusunum okkar??? (Minns er alveg dauðskelkaður við "svín" þessa dagana og þyrfti helst að vera í eins konar sóttkví fram á nk. mánudag þar til ég fæ bóluefnissprautuna góðu!!!)
Eru ekki annars örugglega allar að fara að mæta sem voru búnar að boða komu sína? Hver er endanleg tala?
Þarf ekki líka að panta borð á Fjöruborðinu? Hver sér um það?
»
11.10.2009 22:02:55 / studio
Sælar skvísur
Ég, Silla, Svala, Ásta og Guðrún hittumst hjá Svölu í gær og plönuðum örlítið ferðina okkar. Planið er semsagt:
Hittast kl. 12.00, 31.okt, í Olís Norðlingaholti og keyra samferða á Stokkseyri þar sem við ætlum á Fjöruborðið og snæða saman gómsætan humar
Því næst förum við upp í bústað (Söndru), þar sem við komum okkur fyrir og höfum það gott fram á sunnudag!!!
Skemmtinefnd skipar: Ásta, Guðrún og Silla
Matarnefnd: Sandra og Svala - ætlum að versla sameiginlega inn allan mat en allir að koma með eigið BÚSS
Við ákváðum að hafa kjúklingabringur í matinn, vona að allir séu sáttir með það...
Skemmtinefndin sér um alla skemmtun og matarnefnd um að versla í matinn og svona. Þið hinar sleppið samt ekki við uppvakið og annað
Höfum það á hreinu
Sem sagt ef að það verður leiðinlegt þá getið þið kennt Á, G og S um, það er komin pressa á ykkur stelpur
Meiri upplýsingar koma þegar nær dregur...
Þangað til næst,
Sandra
»
07.10.2009 11:49:11 / studio
Hellú ladies
Langaði bara að forvitnast hverjar væru lausar nk. laugardagskvöld?
Eyþór er að fara að vera að heiman allan daginn og fram eftir kvöldi þannig að ég var að spekúlera hvort ég ætti að henda í heita brauðrétti or something og hóa í ykkur...
Væri gaman að hittast - og Ástan okkar verður nú meira að segja komin á klakann!!! Gætum þá líka tekið umræðuna um það hvernig við viljum hafa "árshátíðina" okkar, (þ.e.1 eða 2 nætur, borða í bústaðnum eða fara eitthvað í dinner o.s.frv.)
ENDILEGA COMMENTIÐ krúsurnar mínar.
»